Þórhallur Guðlaugsson
(thorehf@gmail.com)
Ég kynntist dáleiðslu (þá sjálfsdáleiðslu) fyrst fyrir einum 50 árum síðan. Tengdist því að ég hafði sem unglingur óskapar ótta af því að fara til tannlæknis. Reyndar var full ástæða til þess hvað viðkomandi tannlækni varðaði. Í stað þess að mæta ekki, eins og sumir gerðu, þá uppgötvaði ég að ég gat sefjað mig með einhverjum hætti þannig að ég nánast sofnaði í stólnum og fann ekki fyrir neinu. Vissi ekki fyrr en nokkru síðar að hér var í raun um mjög öfluga sjálfsdáleiðslu að ræða.
Nokkru síðar höguðu aðstæður í lífi mínu þannig til að ég fékk mikinn áhuga á hugleiðslu og ýmsum öðrum sjálfseflandi aðferðum. Studdist m.a. við aðferðir Harold Sherman sem þróaði áhrifaríka leið til að ná betri árangri í lífinu. Svipar mjög til dáleiðslu þó svo að Sherman tali reyndar aldrei um aðferðina þannig.
Í rúm 40 ár hef ég sinnt þessu hugðarefni mínu en þó fyrst og fremst sjálfum mér til gagns. Hef þó lokið prófið í dáleiðslu (certified hypnotist), sjálfsdáleiðslu (self-hypnosis in hypnotherapy practice) og klíniskri dáleiðslu (certified clinical hypnotherapist) og hef síðustu ár boðið upp á þjónustu á því sviði.
Hef reyndar einnig lokið doktorspróf (PhD) en það er nú ekkert víst að það gagnist í þessu 🙂