Gagnsemi dáleiðslu er margvísleg og stundum er því haldið fram að eina takmörkunin sé einstaklingurinn sjálfur. Það er þó augljóst að dáleiðsla kemur ekki í stað hefðbundinnar læknismeðferðar en getur í einhverjum tilvikum verið ágætur stuðningar við slíka meðferð.

Sjálfsefling
Dáleiðsla kallar fram vitundarástand sem hægt er að nýta til sjálfseflingar. Öll þurfum við að ná einhvers konar árangri í lífinu, hvort sem til skemmri eða lengri tíma er litið. Lágt sjálfsmat kemur í veg fyrir að þessum markmiðum sé náð. Í meðferðinni er lögð áhersla á að efla sjálfsvitund og sjálfsálit með það í huga að geta betur fengist við þau viðfangsefni sem staðið er frammi fyrir.