Hugarþel og dáleiðsla
Hugmyndin
Hugarþel byggir á þeirri hugmynd að fólk búi yfir líkamlegum, andlegum og félagslegum þörfum. Allt þarf því að vera í jafnvægi rétt eins og gengið er út frá í hinni fornu heimspeki um Yin og Yang.

Viðfangsefnin
Þó svo að hugarþel snúi frekar að andlegu hliðinni þá verður ekki fram hjá því horft að mikið af andlegum örðugleikum (s.s. kvíði, reiði, lágt sjálfsmat) á rætur að rekja til líkamlegra (s.s. ofneysla, hreyfingarleysi, svefnleysi) eða félagslegra atriða (s.s. einangrun, vinaleysi, ofbeldi). Allt hefur því áhrif á allt.
Verkfærin
Dáleiðsla er eitt af verkfærum hugarþels og er aldagamalt fyrirbæri sem í grundvallaratriðum gengur út á að tengja saman dagvitund (ca. 30%) og undirvitund (ca. 70%). Viðfangsefnin eru margvíslega, s.s. eins og að ná betri árangri, losna við og eyða óæskilegum tilfinningum (kvíða, reiði, ótta o.s.frv.), draga úr verkjum, losna við aukakíló, hætta að reykja, drekka minna, sofa betur, auka bjartsýni og þannig mætti lengi telja.
Innri vitund
Hugmyndin byggir á því að hver og einn búi yfir einhverju sem kalla má innri vitund eða innra sjálf. Þetta gengur undir mörgum nöfnum, s.s. eins og Innri styrkur, Kjarninn, Sálin, Hinn hlutinn af sjálfum mér, Æðri máttur, Heilagur andi, en í raun skiptir það ekki öllu máli hvað þetta er kallað. Aðalatriðið er að viðkomandi gangist við því að innra með sér sé einhver styrkur sem hægt sé að nýta til góðs. Dáleiðsla gengur út á að ná sambandið við þessa innri vitund.
Sjálfsdáleiðsla
Öll dáleiðsla er í raun sjálfsdáleiðsla. Þannig geta allir sem það vilja dáleiðst og að sama skapi er ekki hægt að dáleiða einstakling sem vill það alls ekki.
Meðferðardáleiðsla
Gjarnan er talað um að meðferðardáleiðsla eigi sér fjóra hornsteina eða skref. Fyrsta skrefið, dástikur, er það sem dáleiðarinn segir við viðkomandi sem er dáleiddur. Getur verið mjög áhrifaríkt og gagnlegt. Sá sem er dáleiddur upplifir mjög þægilega tilfinningu sem oftast tengist þeirri miklu slökun sem dáleiðslunni fylgir. Sá árangur sem næst er þó gjarnan aðeins tímabundinn og fyrr en varir er eins og allt sé fallið í fyrra horf.

Ástæðan er sú að ekki hefur verið fengist við að draga fram hver orsökin er (skref 2), hverjar séu hugsanlegar lausnir (skref 3) og hvernig megi þá “endurforrita” þá þætti undirvitundarinnar sem eru að hafa truflandi áhrif. Hér verður að hafa í huga að mjög alvarlegir atburðir fortíðar geta verið þess eðlis að rétt sé að fá viðeigandi læknis- og/eða sálfræðimeðferð til að fást við þá. Á því verður hver og einn að bera ábyrgð á.
Hugræn endurforritun
Hugræn endurforritun er aðferð sem Ingibergur Þorkelsson (IÞ), skólastjóri Dáleiðsluskóla Íslands ehf, hefur þróað. Um er að ræða aðferð sem byggir að stórum hluta á mörgum þekktum dáleiðsluaðferðum en sett er saman með þeim hætti að árangur er líklegri en ella. Í aðferðinni kýs IÞ að nota orðið Centrum yfir það sem kallað hefur verið innri vitund (ásamt fjölda annarra heita) hér að framan (sjá nánar: daleidsla.is).

Sú leið sem notuð er í tengslum við hugarþel byggir í grundvallaratriðum á þessum aðferðum en einnig ýmsu öðru.
Dáleiðsla eða ekki?
Margir telja að dáleiðsla sé e.k. ómeðvitundarástand þar sem dáleiðsluþegi missir alla stjórn á aðstæðum. Svo er ekki þó svo að árangursríkri dáleiðslu fylgi gjarnan mikil slökun, svo mikil að viðkomandi eigi það til að sofna. Það er þó alls ekki markmið dáleiðslu.

Á myndinni má sjá hjartsláttarrit við einstakling sem er í dáleiðslu milli 9.50 og 10.50. Var þó aldrei viss um að hafa dáleiðst. Þegar viðkomandi er í dáleiðslu, þá mjög vel vakandi, er hjartslátturinn svipaður og þegar hann/hún var sofandi. Það er einmitt hin æskilega staða sem sóst er eftir og gefur tækifæri til að eiga árangursríkt samtal við undirvitundina.
Áhugasöm geta sent póst á thorehf@gmail.com og pantað tíma. Góð kjör í boði 🙂
Ítarlegri umræðu um þetta efni má nálgast hér